7.6.2007 | 08:20
Grunnskóli Borgarfjarðar - skólaslit
Það er alltaf ánægjulegt að vera við skólaslit. Árangur vetrarins uppskorinn, gleði í hvers manns andliti og mæting er alltaf góð.
Guðlaugur skólastjóri flutti ágæta ræðu um gildi skólastarfs og hversu fjölbreytt það er.
Kennarar kölluðu á nemendur upp í kórinn og afhentu vitnisburð vetrarins. Undantekningalaust voru börnin kurteis og heimili sínu til sóma.
Hluti skólastarfs og ekki sá veigaminnsti er óhefðbundinn. Hann felst í leiklist, félagsmálum og almennum samskiptum. Ég hef oft verið vitni að því að sá þáttur er í góðu lagi í Borgarfirði og þessir krakkar hafa oftar en ekki komið manni á óvart með glæsilegum sýningum, bæði á Kleppjárnsreykjum og Hvanneyri.
Reykholtskirkja er metfé fyrir Borgarfjörðinn. Að hafa slíkt hús er ómetanlegt og hafi þeir sem höfðu metnað og dug til þeirrar byggingar ómælda aðdáun mína.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.