9.7.2007 | 15:30
Kvótinn og náttúran
Nú hefur verið tilkynnt um 30% samdrátt í þorskveiðum á næsta fiskveiðiári með tilheyrandi þrengingum einstaklinga, fyrirtækja, sveitarfélaga og þjóðarbús. Ég kann ekki að meta hvort ákvörðunin er nákvæmlega rétt en tel að það hafi verið erfitt fyrir sjávarútvegsráðherra að bregðast öðruvísi við.SSV hefur kynnt skýrslu um áhrif þessa samdráttar á sveitarfélög á Vesturlandi og eru þær niðurstöður sláandi fyrir nokkur þeirra. Ríkisstjórnin hefur lofað mótvægisaðgerðum en ég er ekkert hissa á viðbrögðum Ásbjörns Óttarssonar "eðalíhaldsmanns" úr Snæfellsbæ sem telur þær "þunnar, klisjukenndar og án gagns" eins og haft er eftir honum á skessuhorn.is. Loforð ríkisstjórna eru það oft - of oft.Þessi samdráttur í atvinnumálum er hins vegar ekki nýr af nálinni og enn muna flestir þeir sem í landbúnaði starfa eftir áhrifum kvótakerfis, fullvirðisréttar, greiðslumarks og hvað þetta nú allt hefur heitað í gegnum tíðina. Það var ekki glæsileg framtíðarsýnin hjá þeim sem á "moldina trúðu" og höfðu byggt allt nýtt þegar framleiðsluskerðingarnar voru tilkynntar í landbúnaðinum. Suma svíður enn.Sá samdráttur var hins vegar vegna markaðsmála. Í fiskveiðunum hrópar og kallar náttúran; "það er eitthvað að gerast". Hvar er þorskurinn? Hvers vegna koma hvorki lundinn og krían upp ungum? Hvar er laxinn?Verða menn ekki að gera meira en velta þessum spurningum fyrir sér og tal svo um mótvægisaðgerðir.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:32 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.