Sparisjóðurinn

Það vakti athygli nú nýlega þegar eitt stjórnmálaaflið í Borgarbyggð tók eftir því að Sparisjóðurinn var allur.

Ég fór þess vegna að rifja upp þetta mál og þá baráttu sem var háð til að fá upplýsingar um hvað raunverulega gerðist.  Þær komu auðvitað aldrei.  Var þar í raun tvennt verst.  Annarsvegar óhæfir stjórnendur sem skýldu sér bak við bankaleynd og svo hinsvegar tregða fulltrúa annarra flokka til að vinna með mér að málinu.

Flestir kunna þessa sögu.  Fyrir hina má rifja upp.

1.  19. júní 2008 er byggðaráð kallað til neyðarfundar í höfuðstöðvum Sparisjóðsins.  Þar taka á móti okkur sparisjóðsstjóri og formaður stjórnar.  Þar er okkur tilkynnt að Fjármálaeftirlitið hafi gert athugasemdir við stöðu sjóðsins.  Á þeim fundi gerði ég um það tillögu að sparisjóðsstjóri og formaður stjórnar yrðu settir til hliðar og aðrir aðilar fengnir til að stýra sjóðnum.  Því var hafnað því miður. 

2.  Næstu daga á eftir voru sífelld fundahöld um hvað bæri að gera.  Flestar upplýsingar og stöðuskýrslur úr sjóðnum reyndust marklaus plögg.  Ráðleysið var algert

3. Meirihluti byggðaráðs krafðist algers trúnaðar um málið og skákuðu í því skjóli að annars gætu viðskiptamenn gert áhlaup á sjóðinn.  Ég gagnrýndi það verulega og hótaði að lokum að brjóta trúnað ef sveitarstjórn öll yrði ekki kölluð að málinu.  Það gerðist fyrst þegar töluvert var liðið á júlí.

4.  Frá upphafi talaði ég um að fá óháða aðila til ráðgjafar en því var hafnað.

5. Öllum hugmyndum um formlega rannsókn var einnig hafnað.  Þar voru notuð ýmis rök t.d. trúnaður, kostnaður og fl.

 Í fundargerðum byggðaráðs og sveitarstjórnar frá sumrinu 2008 má lesa um þetta mál og skora ég á áhugasama að kynna sér þær fundargerðir.  Ætla í lokin að birta hluta af fundargerð byggðaráðs frá 6. ágúst 2008 þar sem fjallað er um SPM.

 "  Málefni SPM

Á fundinn mætti Kristinn Bjarnason lögfræðingur til viðræðna um málefni Sparisjóðs Mýrasýslu.

 

Sveinbjörn lagði fram svohljóðandi bókun:

Sparisjóðir, ekki síst á landsbyggðinni eiga í verulegum vandræðum vegna endurfjármögnunar.  Sparisjóðir hafa gengt veigamiklu hlutverki á sínum svæðum og eru í byggðalegu tilliti mjög mikilvægir.  Byggðarráð Borgarbyggðar beinir því til ríkisstjórnarinnar að nú þegar verði gripið til aðgerða til að auðvelda sparisjóðum endurfjármögnun á svipaðan hátt og Íbúðalánasjóði er ætlað að endurfjármagna lán til íbúðarkaupa.

 

Bjarki og Finnbogi lögðu fram svohljóðandi bókun:

Höfnum ofangreindri tillögu með hliðsjón af því að það er ekki á verksviði ríkisvaldsins að styrkja einstaka fjármálastofnanir.

 

Sveinbjörn lagði fram svohljóðandi bókun:

Öllum trúnaði vegna upplýsinga er varðar sparisjóðinn verði aflétt.  Þar sem öllum má nú vera ljóst að SPM á í vandræðum og fyrir liggja tillögur um aukið stofnfé ber sveitarstjórnarfulltrúum skylda til að ræða þetta mál við sína umbjóðendur án nokkurra undanbragða.  Það er mitt mat að trúnaður þjóni ekki neinum tilgangi lengur og því beri að aflétta honum.

 

Bjarki og Finnbogi lögðu fram svohljóðandi bókun:

Fram til þessa hefur verið nauðsynlegt að halda ákveðinn trúnað vegna stöðu SPM til að verja hagsmuni sveitarfélagsins og viðskiptavina hans.  Í ljósi stöðu viðræðna við Kaupþing samþykkja undirritaðir þessa tillögu.

 

Sveinbjörn lagði fram svohljóðandi bókun:

Ástæða er til að gagnrýna vinnubrögð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Borgarlista eftir að ljós voru vandræði SPM.  Hér er um veruleg verðmæti að ræða og því mætti ætla að ástæða hefði verið til að vanda sérstaklega til verka.  Sérstaklega er gagnrýnt að:

            engin óháður aðili hefur verið fenginn til aðmeta stöðu sjóðsins og gera tillögur að framtíðarfyrirkomulagi

            engin skrifleg gögn hafa verið lögð fyrir sveitarstjórn eða byggðarráð þannig að þær stofnanir geti byggt ákvarðanatöku sína á faglegum staðreyndum

            vegna trúnaðarskyldu hafa fulltrúar í þessum ráðum ekki getað leitað sér sérfræðiaðstoðar á eigin vegum

            enn hefur enginn fundur verið haldinn með endurskoðanda SPM þrátt fyrir skriflega beiðni þar um

            sveitarstjórn var haldið frá málinu í upphafi og það var einungis fyrir þrábeiðni mína og skriflega tillögu að sveitarstjórn var kynnt málið

            fulltrúaráð SPM var ekki kallað saman fyrr til að fjalla um breytingar á rekstri sjóðsins

 

Bjarki og Finnbogi lögðu fram svohljóðandi bókun:

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur unnið náið saman í þessu stóra máli sem snertir samfélag okkar verulega.  Hagur viðskiptavina sjóðsins, starfsfólks hans og sveitarfélagsins hefur verið hafður að leiðarljósi í þeirri vinnu og þar hafa byggðarráðsmenn allir búið yfir og haft aðgang að sömu upplýsingum.  Byggðarráði var kynntur rekstrarvandi SPM þann 19. júní s.l. og hefur síðan verið unnið að því að finna leið til að endurfjármagna sjóðinn.  Undirritaðir telja að samkomulag það við Kaupþing sem kynnt hefur verið sé til þess fallið að tryggja áframhaldandi rekstur sjóðsins og þá hagsmuni sem menn einsettu sér að verja í upphafi.  Því er alfarið hafnað að ekki hafi verið vandað til verka í þeim viðræðum sem staðið hafa síðan staðan var kynnt byggðarráði.

 

Sveinbjörn lagði fram svohljóðandi bókun:

Stend við þá gagnrýni sem ég set fram í bókuninni en vil þó taka fram í ljósi bókunar meirihlutans að gagnrýni mín beinist ekki að Kaupþingi.

 

Sveinbjörn lagði fram svohljóðandi bókun:

Ég legg til að þeim fulltrúum í sveitarstjórn Borgarbyggðar sem ekki eiga sæti í fulltrúaráði SPM verði boðið að sitja fund fulltrúaráðsins þann 15. ágúst með málfrelsi og tillögurétti.

 

Bjarki og Finnbogi lögðu fram svohljóðandi bókun:

Samþykkjum að beina þeim tilmælum til stjórnar að þeir aðilar í sveitarstjórn Borgarbyggðar sem ekki eiga sæti í fulltrúaráði SPM fái að sitja fund fulltrúaráðsins. 

Sveinbjörn lagði fram svohljóðandi tillögu:

Legg til að öll gögn er varða stöðu sjóðsins og framtíðartilhögun verði send óháðum aðila og hann fenginn til að fara yfir þau.  Niðurstöður verði lagðar fyrir ekki síðar en á sveitarstjórnarfundi þann 14. ágúst n.k. 

Tillagan var samþykkt samhljóða.

 

Samþykkt að halda opinn íbúafund um málefni Sparisjóðsins.  Nánari tímasetning liggur ekki fyrir."

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband