Færsluflokkur: Bloggar

Hvað má?

Sæl öllsömul.

Eftir ágæta fundarlotu nú undanfarið þá hef ég velt ýmsu fyrir mér og í leið rifjað upp brot úr einum texta Jónasar Árnasonar hvar segir: "Það er meðal annars það sem ekki má".

Ég hef í raun aldrei verið í framboðsslag áður þó sumir haldi annað.  Kannski þess vegna hefur það gleymst að afhenda mér bæklinginn " Þetta má ræða á framboðsfundum í Borgarfirði".

Ég hef leyft mér að ræða leikskólamál.  Háskólaráð Viðskiptaháskólans á Bifröst sá ástæðu til að setja ofaní við mig vegna þess með sérstakri ályktun  Þar segir í upphafi. 

 "Þar sem málefni leikskólans á Bifröst hafa verið dregin inn í kosningabaráttu vegna sveitarstjórnarkosninga í nýju sameinuðu sveitarfélagi í Borgarfirði sendir Háskólaráð frá sér svohljóðandi ályktun:

Úpss, asni get ég verið.  Ég gleymdi alveg að biðja þá á Bifröst um leyfi til að ræða þetta.  Ég sem hélt að leikskólamál væri kannski það algengasta sem menn ræddu einmitt í kosningabaráttu.  Nei, hér heitir þetta að draga málefni inn....  Verð víst að passa mig betur næst.

Á fundi í Brúarási kom fram fyrirspurn um slökkviliðin.  Ég svaraði henni eftir bestu getu og minnti jafnframt á að okkar slökkvilið væru byggð upp af áhugasömum sjálfboðaliðum og það væri mjög mikilvægt að viðhalda áhuga meðal slökkviliðsmanna.  Ég sagði að það hefði tekist mjög vel hjá Pétri Jónssyni og Guðmundi Hallgrímssyni hér hjá Slökkviliði Borgarfjarðardala.  Ég þekkti það ekki nógu vel annarsstaðar en hins vegar vissi ég til þess að það hefði orðið að fella niður námskeið í Borgarnesi vegna þess að menn hefðu ekki mætt.  EF ÞAÐ VÆRI VEGNA ÁHUGALEYSIS ÞÁ ÞYRFTI AÐ SKOÐA ÞAÐ.  Úpsss, þetta var mun meira en sumir þoldu eða léku sér að því að misskilja þetta og strax næsta dag og það fyrir hádegi var komin spurning um hvort ég hefði talað illa um Slökkviliðið í Borgarnesi.  Ég talaði ekki illa um slökkviliðið í Borgarnesi.  Ég var einungis að benda á hvað væri mikilvægt að viðhalda áhuganum.  Kannski á maður ekki að ræða málefni slökkvilið nema maður vilji brenna sig.

Og í lokin er ég skammaður fyrir að minnast á góð mál í Borgarfjarðarsveit og vilja eigna það allt Framsóknarmönnum og gleyma hlut starfsfólksins.  Úpsss, hvað má ég eiginlega tala um ef ekki verk okkar í Borgarfjarðarsveit?  Hins vegar hef ég aldrei eignað það Framsóknarmönnum heldur langoftast talað um okkur í Borgarfjarðarsveit og kannski einu sinni eða tvisvar minnt á sjálfan mig í þessu sambandi.  Ég tók skýrt fram í útvarpi að þar hefði verið ópólitískur listi og við hefðum unnið vel saman að mörgum góðum málum.  Þá hef ég ávallt líst yfir mikilli gleði með starfsfólk okkar og sagt það vinna vel.  Ég get hins vegar ekki neitað því að mér finnst mjög gaman þegar aðrir rifja það upp og minna á að sú hreppsnefnd er auðvitað skipuð að meirihluta Framsóknarmönnum og sú eina sem ekki hefur gefið sig upp í flokkapólitík ætlar að vinna með okkur á næsta kjörtímabili.

Kannski mæti ég bara á fundinn í Borgarnesi með góða sögubók og les stuttan kafla.  Þá ætti enginn að verða sár, nema ef honum líkar ekki höfundurinn.

Kveðja úr sveitinni, Sveinbjörn


Fundur á Hvanneyri.

 Sæl öll sömul.

Fundurinn á Hvanneyri í gærkvöldi var ágætur.  Töluverð mæting var á fundinn og urðu umræður hinar fjörugustu.  Rósa Marinósdóttir vinkona mín mætti vel undirbúin og með fangið fullt af erfiðum spurningum.  Rósa er ein af þessum manneskjum sem gerir samfélagið ríkara.  Í gegnum tíðina hefur hún ávallt verið tilbúin að taka sinn þátt og rúmlega það af samfélagsverkefnum og enn brennur eldur hugsjóna um betra samfélag í hennar brjósti.

Sama má reyndar segja um vin minn Sverri Heiðar.  Hann hefur hvergi vikist undan verkefnum hvort sem um sveitarstjórnarmál eða íþrótta- og ungmennamál er að ræða.

Þetta er fólkið sem af sanngirni gerir kröfur til okkar sem stöndum á pöllum stjórnmálanna og halda því vonandi áfram lengi enn.

Á fundinum í gær kristallaðist sú hræðsla sem sjálfstæðismenn hafa gagnvart framboði okkar Framsóknarmanna.  Menn sem skipa sæti á lista flokksins spurðu grimmt og þá fyrst og fremst okkur Framsóknarmenn.  Svo rammt kvað að þessu að félagi minn Finnbogi Rögnvaldsson var farinn að "stelast" til að svara spurningum sem til okkar var beint svo hann týndist ekki á fundinum.

Ég hef undanfarið haft verulegar áhyggjur af því hvert meirihlutinn í Borgarbyggð er að fara með leikskólamálin.  Þau mál voru töluvert rædd á fundinum og var fátt um efnisleg svör.  Ljóst er að bæði Sjálfstæðismenn og Borgarlistamenn eru á harðahlaupum undan ábyrgð í því máli að klára sig af rekstri leikskólanna.  Reyndar mátti að hluta greina sömu uppgjöf varðandi grunnskólana og þá er nú eðlilegt að manni bregði.  Hvert er stefnt?

Ég velti þvi stundum fyrir mér hvort svona fundir hafa afgerandi áhrif á skoðun manna eða hvort þangað mæti fyrst og fremst þeir sem þegar hafa ákveðið hvað þeir kjósa.  Ég held að okkur Framsóknarmönnum hafi tekist vel upp í gær að vekja menn til umhugsunar hvert stefni. Við komum málefnum okkar vel til skila og fengum ágætar undirtektir.  Ég marka það af samtali sem ég átti við sjálfstæðismann eftir fundinn.  Hann sagði að þessi fundur hefði ekki skipt sköpum.  Það hefði hann ekki sagt ef hann hefði verið ánægður með sína menn.  Þá hefði hljóðið verið annað enda sjálfstæðismenn meistarar í að gera mikið úr litlu ef þeirra menn eiga í hlut.

Haukur Júlíusson steig sín fyrstu pólitísku spor á fundinum í gærkvöld.  Hann var ekki alltaf í takt eins og títt er um nýliða og mismælti sig illa þegar hann vildi ekki fara lengra en að Hítárá í vestur með nýtt sveitarfélag en var fljótur að leiðrétta sig.   En Haukur sagði annað sem ég tek undir með honum af heilum hug.  Hann sagðist bera virðingu fyrir öllum þeim sem taka þátt í sveitarstjórnarpólitík, hvar í flokki sem þeir standa.  Laun heimsins eru vanþakklæti, ekki síst í pólitík.  Nú stendur hins vegar yfir pólitísk fegurðarsamkeppni og liður í henni er að gera félaga sína og vini svolítið ótrúverðuga um leið og eigið ágæti er dásamað.  Sú játning skal gerð hér að það er ekki skemmtilegt hlutverk en svona er þetta bara.

En áfram skal halda og í kvöld munum við hittast í Brúarási og eiga góða stund með kjósendum.

Kveðja Sveinbjörn


Dagur í Kolbeinsstaðahreppi

Góðan daginn kæru vinir.

Mánudaginn 15. maí lá leið mín um Kolbeinsstaðahreppinn og reyndar lengra því ég byrjaði daginn á að heimsækja Jóhönnu skólastjóra í Laugagerðisskóla og hennar fólk.  Ég fékk það sterkt á tilfinninguna að í Laugagerði sé rekið skemmtilegt skólasamfélag.  Ekki síst er samstaða heimamanna aðdáunarverð.  Það sést best á því að daginn eftir hafði Heimili og Skóli akveðið að verðlauna foreldrafélagið fyrir vel unnin störf.  Ómetanlegt fyrir svona stofnun að hafa sterkt foreldrafélag.

Þá keyrði ég á nokkra bæi og átti góðar stundir með Kolhreppingum.  Ég er alltaf að verða sannfærðari um að það var rétt að Kolhreppingar tækju þátt í þessari sameiningu.

Um kvöldið var opinn fundur allra framboða í Lindartungu.  Ég hafði góða reynslu af fundahöldum í Lindartungu og vænti því mikils af fundinum.  Það sannaðist hins vegar að pólitík á ekki roð í sauðkindina og mæting var lítil.  Fundurinn var hins vegar skemmtilegur og frambjóðendur fengu ágæta málfundaræfingu ekki síst ég og Sigurður vinur minn í Hraunholtum.  Alltaf gaman að glíma við Sigurð enda flytur hann mál sitt af þunga og gott ef hann er ekki enn trúr hugsjónum sínum.  Það á hins vegar ekki við um ýmsa þá aðra sem kenna sig nú við breiðfylkingu félagshyggju.   Mikið held ég að þeir hefðu nú gott af því að koma í pólitíska endurhæfingu hjá okkur Framsóknarmönnum.

 Kveðja Sveinbjörn


Menning á Vesturlandi

Ágætu vinir.

Ég var viðstaddur fyrstu úthlutum styrkja frá menningarráði Vesturlands í gær.  Úthlutunin fór fram í húsakynnum Landnámsseturs í Borgarnesi.

Gaman var að sjá hversu fjölbreytt sú menning var sem hlaut náð fyrir augum úthlutnarnefndar.  Mikil gróska er í þessum atvinnuvegi og hugmyndirnar óþrjótandi.  Samt er það svo að seint fá allir það sem þeir óska eftir en þá er ekki annað að gera en þróa verkefnið betur og gefast ekki upp.  Við erum að upplifa það að hlutur menningar í atvinnustarfsemi vex stöðugt og við verðum að hlúa vel að þeim vaxtarsprotum sem nú eru að skjótast upp úr frjóum jarðvegi menningar og sögu hér í landshlutanum

Hæðsta styrkinn að þessu sinni hlaut Landnámssetrið i Borgarnesi og kom það ekki á óvart.  Gaman var líka að sjá rausnarlegan styrk til Snorrastofu þar sem Bergur Þorgeirsson minn ágæti  vinur spinnur skemmtilega hvern þann þráð er glæðir söguna í Reykholti lífi.

Ég vil óska öllum þeim er fengu úthlutun í gær til hamingju með styrkinn og hvetja aðra til að vinna vel að sínu.

 

Kveðja Sveinbjörn


Landnámsetur í Borgarnesi

Sæl öll.

 Ég var viðstaddur opnun Landnámsseturs í Borgarnesi í gær ásamt fjölmenni.  Fyllsta ástæða er til að óska Sigríði Margréti Guðmundsdóttur, Kjartani Ragnarsyni og okkur öllum til hamingju með þennan stað.  Með nútímatækni er sagan gerð ljóslifandi og ég átti auðvelt með að lifa mig inn í landtöku landnámsmanna, þegar ég stóð í stafni knerris sem hreyfðist eftir sjólagi.  Þá er texti sem Hallmar Sigurðsson les fyrir sýningargesti skýr og lifandi.  Virkilega flott.

Landnámssetur mun án efa verða eftirsóttur staður af ferðamönnum, bæði innlendum og útlendum og auka straum ferðamanna um Borgarfjörð.  Staðurinn bíður upp á svo margt.  þar er sýning, leiksýning og veitingastaður, upplagður staður fyrir hópa að stoppa á og njóta stundarinnar.  Enda leið ekki langt fram á daginn þar til fyrsti hópurinn var kominn.  Hér er sýnilega ekki legið á liði sínu.

Hér er kærkomin viðbót við menningar- og ferðaþjónustuflóru Borgarfjarðar.  Ég skora á sem flesta að skoða staðinn og drífa þangað gesti sína, þeir verða ekki fyrir vonbrigðum.

Kveðja úr sólinni á Hvanneyri, Sveinbjörn


Opnun kosningaskrifstofu

Sæl öll.

Framsóknamenn opnuðu kosningaskrifstofu í Félagsbæ á miðvikudagskvöldið.  Mæting var góðog þar áttum við aldeilis ágæta stund.

Umboðsmenn listans þeir Kristján Axelsson í Bakkakoti og Sveinn Hallgrímsson á Vatnshömrum stjórnuðu samkomunni og fórst það af skörungsskap.  Framsóknarmenn hafa reynslu af því að mikið getur mætt á umboðsmönnum og því rétt að hafa þá trausta.

Gestir fundarins þeir Guðni Ágústsson og Magnús Stefánsson fluttu ávörp og hvöttu menn til dáða og frambjóðendur stigu á stokk og strengdu heit fyrir komandi baráttu.  Gaman var að sjá reynda bolta eins og Finnboga í Hítárdal og Kolfinnu í Norðtungu í bland við yngra fólkið á listanum.  Ég er sannfærður um að það hefur tekist vel til við val á þessum lista og fólk verður ekki fyrir vonbrigðum með starfs þessa fólks.

Eftir stutt ávörp nutum við kaffiveitinga í bland við harmonikku og gítarspil og svo var spjallað frameftir kvöldi þar sem hver hernaðaráætlunin á fætur annarri varð til.

Bjarni Valtýr er aldrei langt undan þar sem Framsóknarmenn hittast.  Hann kom til mín í lokin og rétti mér miða.  Á þessum miða stóð:

Lýðinn seður sigurvon

sælum meður ráðum.

Áfram kveður Eyjólfsson

Eitthvað skeður bráðum

 

Kærar þakkir Bjarni


Skemmtilegur dagur

Sælir sveitungar.

Við Framsóknarmenn áttum ágætan miðvikudag.  Þá heimsóttum við fyrirtæki, stofnanir og hestamenn í Borgarnesi auk þess sem við opnuðum kosningaskrifstofu.  Með okkur í för voru Gunði Ágústsson varaformaður flokksins og landbúnaðarráðherra og Magnús Stefánsson alþingismaður og formaður fjárlaganefndar.

Það er alltaf gaman að hitta Konráð í Loftorku sem ávallt er á vaktinni í sínu fyrirtæki.  Hann rölti með okkur, sýndi okkur starfsemina og sagði frá því sem helst er á baugi.  Samtöl við starfsmenn voru skemmtileg en þau gengu ekki alltaf auðveldlega fyrir sig því í Loftorku má mjög greinilega finna þá spennu sem er á vinnumarkaði því þriðjungur starfsmanna eru útlendingar.

Í viðtölum við Konráð kom m.a. fram að árið 1995 voru starfsmenn Loftorku um 30, nú eru þeir rétt að slá í 200.  Skemmtilegt að skoða þessar tölur í ljósi þess að þennan tíma hefur Framsóknarflokkurinn verið í ríkisstjórn og farið með atvinnumálin.

Arnar Sigurðsson forstöðumaður sölusviðs sýndi okkur Vírnet og sagði frá starfsemi.  Vírnet hefur vaxið skemmtilega á síðustu árum ekki síst fyrir samruna eða kaup á öðrum fyrirtækjum.  Mjög gaman var að koma í fyrirtækið og hitta starfsmenn þess.

Við heimsóttum nýjar bæjarskrifstofur undir leiðsögn Páls bæjarstjóra og drukkum kaffi með starfsmönnum.  Í samtölum við þá kom fram að það mun ekki síst mæða á starfsmönnum hins nýja sveitarfélags fyrst eftir sameiningu til að við getum byggt upp hér betra samfélag.  Starfsmennirnir taka hlutverk sitt alvarlega og einmitt þegar við komum var hluti þeirra í þjálfun við vinnslu í nýju bókhaldskerfi.

Þá renndum við í hesthúsahverfi Skuggamanna og hittum þar stjórn Halldór Sigurðsson fomann ásamt fleiri stjórnarmönnum og Kristján Gíslason skólastjóra sem hefur farið fyrir í undirbúningsvinnu vegna byggingar reiðhallar í Borgarnesi.   Guðni hét því að hann myndi styrkja bygginguna og hvatti menn til dáða.  Dóri tók vel á móti okkur með kaffi og rjúkandi vöfflum með alvöru rjóma.  Kærar þakkir Guðrún.

Við röltum aðeins um hverfið og hittum hestamenn á útreiðum og við hirðingu.  Mátti vel greina að sumir þeirra eru komnir hálfa leið á landsmót.  Gott að vita að það er hugur í Skuggamönnum.  Þá ræddu þeir reiðleiðir og reiðvegi í nágrenni hverfisins og ljóst að þar má gera betur.

Þetta var góður dagur og þakka ég öllum sem tóku á móti okkur og gáfu okkur hluta af sínum dýrmæta tíma.

 Kveðja, Sveinbjörn


Kosingabarátta.

Sæl öllsömul.

Alla jafna eru öll dýrin í hinum pólitíska skógi vinir.  Það er reynsla mín að það sé gott að vinna með flestum þeim sem gefa sig að sveitarstjórnarstörfum og í raun eiga allir heiður skilinn sem vilja taka þátt í þessum vanþakklátu störfum.

En á fjögurra ára fresti gerist eitthvað!  Þá fara menn að brýna klærnar og af stað fer einhver óskilgreind "fegurðarsamkeppni".  Menn standa á torgum og dásama sjálfan sig og sína stefnu en vilja ekkert kannast við það ágæta fólk sem það hefur átt gott samstarf við undanfarin ár.

Þetta er sérkennilegt - en samt nauðsynlegt.  Kjósendur eiga auðvitað rétt á að vita fyrir hvaða áherslur menn og flokkar standa til að geta valið þá fulltrúa sem stjórna sveitarfélaginu næstu fjögur árin. 

Og kjósendur verða að muna lengur en fram að kjördegi hverju var lofað til að geta borið saman við verkin.  Þar er oft himinn og haf á milli.

Í okkar ágæta nýja sveitarfélagi stendur valið milli þriggja framboða.  Það er sérkennileg staða að áður en stefnuskrá framboðanna var lögð fram virðast fulltrúar Borgarlistans og Sjálfstæðisflokks hafa ákveðið að starfa saman, líkt og þeir hafa gert í bæjarstjórn Borgarbyggðar undanfarin fjögur ár.

Er þetta bara hægt?

Hvernig er hægt að hafna samstarfi við okkur Framsóknarmenn án umræðu og án málefnalegs ágreinings?  Hvar er lýðræðið í þeim vinnubrögðum?

Ég hef átt ágætt samstarf við þetta fólk t.d. í sameiningarvinnu fyrir sveitarfélögin sem ég stýrði með þeim árangri að nú verða fjögur sveitarfélög að einu.  Ég varð hvergi var við þá hnökra í þeirri vinnu að það ætti að fæla frá samstarfi við okkur Framsóknarmenn.  Þvert á móti.  Þess vegna eru þessar kveðjur til okkar sérkennilegar og Borgarlistinn og Sjálfstæðismenn skulda kjósendum skýringar.

Eina raunhæfa svar okkar Framsóknarmanna er því að stefna að góðum sigri í kosningum hér í vor þannig að við fáum meirihluta í sveitarstjórn.  Einhverjum kann að þykja það óraunhæft en þegar grannt er skoðað er það ekki fjarlægur möguleiki.

Þá munum við upplifa skemmtilega þróun í bland við nauðsynlegar breytingar.

Kveðja frá Hvanneyri, Sveinbjörn


Byggjum betra samfélag

Sælir ágætu sveitungar.

Hjálögð er grein sem send var okkar ágæta blaði Skessuhorni til birtingar.

Miklar breytingar verða í sveitarstjórnarmálum í Borgarfirði, á Mýrum og í Kolbeinsstaðahreppi þegar þessi sveitarfélög sameinast nú í vor.  Í fyrsta skipti gerist það að sveitarfélög eru sameinuð yfir þrjár sýslur og þó þessi sveitarfélög myndi heildstætt atvinnu og þjónustusvæði þá er margt ólíkt með þeim.  Þess vegna leggja Framsóknarmenn mikla áherslu á það að strax frá upphafi verði menn meðvitaðir um ólíka uppbyggingu og stjórnsýslan taki mið af þessum mun.  Það verður að tryggja að okkar ágæta samfélag finni sig í einni heild frekar en að hlutar þess upplifi sig sem afgangsstærð.  Vinni menn markvisst út frá þessari stefnu strax frá upphafi eru allar líkur á að þetta takist.  Framsóknarmenn eru nú að kynna áherslur sínar fyrir kosningar í vor.  Skilvirk og opin stjórnsýsla er þar ofarlega í áhersluröð ásamt því að byggja upp fjölskylduvænt samfélag þar sem fólki finnst gott að búa.  Við stefnum að leikskólarýmum fyrir öll okkar börn frá 18 mánaða aldri og við ætlum að standa vörð um grunnskólastarfið eins og það er rekið nú.  Við vitum að þar er unnið gott starf og þó auðveldlega megi sýna fram á hagræðingu í skólastarfi þá miðast allir þeir útreikningar við stöðu dagsins í dag en taka ekki tillit til þeirrar þróunar sem er á svæðinu.  Hún mun ráða miklu meiru um framhaldið en stundarhagsmunir.Frambjóðendur Framsóknarflokksins fagna skoðanaskiptum við kjósendur og óska eftir að þeir hafi samband þannig að hægt verði að ræða áherslur og framtíðarsýn.  Sjálfur hef ég verið að setja hugrenningar mínar á blað á blogsíðu minni sveinbjorne.blog.is og hvet ég ykkur til að lesa þær.  Þar má einnig leggja fram spurningar og skal ég  svara þeim eins og kostur er.Framsóknarmenn eru tilbúnir að takast á við framtíðina.  Við leggjum fram skýrar áherslur og við trúum að með þeim takist okkur saman að byggja upp betra samfélag. 

Kveðja til ykkar allra, Sveinbjörn

 


Málefnaskrá Sjálfstæðisflokksins

Ágætu vinir.

Sjálfstæðismenn hafa sent út stefnuskrá sína fyrir komandi kosningar.  Ég var að glugga í hana í hádeginu og verð að segja að mér líst bara þokkalega á.  Úr þessari stefnuskrá má lesa ágætan metnað fyrir hönd nýs sveitarfélags og framtíðarsýnin er bara ágæt.

En...hvar voru þessi metnaðarfullu áhersluatriði í Borgarbyggð þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur ráðið ríkjum, á því kjörtímabili sem nú er að ljúka?  Hvar voru skipulagsmálin?  Ferlimál fatlaðra? Lóðamálin á kostnaðarverði? Leikskólapláss fyrir tveggja ára börn?  Fréttir af stjórn bæjarins?, svo einhver atriði séu nefnd.

En ég hlýt auðvitað að fagna því að Sjálfstæðismenn ætli að taka sig á og ef þeir meina eitthvað með því, óska ég þeim bara til hamingju.

Kveðja úr sólinni, Sveinbjörn


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband